HarpaSjöfn

You are currently browsing articles tagged HarpaSjöfn.

Ég er kominn í páskafrí…ííííhhhaaaa Ég er nú samt mættur í bókhlöðuna og er að klára efnafræðiskýrslu og sitthvað fleira. Ég og Kolla verðum að vinna slatta í þessu fríi og er það bara gott mál að vinna og læra á milli þess sem maður úðar í sig páskaeggjum. Ég held við verðum að vinna eitthvað heima líka því nú er verið að taka baðið í gegn og mölva allar flísarnar niður. Brynja ætlar að senda mig í HörpuSjöfn á eftir og ég á að kaupa spartl, kítti, málingu, sandpappír og ef til vill eitthvað fleira. Við vorum vinsamlegast beðin um að gera eitthvað í málunum því það lekur meðfram glugganum og niður á næstu hæð inn í einhverja geymslu þegar við erum í sturtu. Það verður því eitthvað lítið sturtað sig heima á næstunni…það er enn hægt að fara í bað en þeir sem eru um einn og nítíu á hæð skilja þegar ég segi að það er ekki þægilegt að liggja ofan í venjulegri stærð af baðkari. Annað hvort standa lappirnar upp úr eða allur efri hlutinn…þannig að ég kýs frekar heita pottinn í sundlaugunum heldur en baðkarið heima. Ætla að halda áfram með efnafræðina…hafið það sem best í dag!

Tags: ,

Já það eru orðnir nokkrir dagar síðan ég skrifaði síðast, maður er búinn að vera gera alveg slatta, aðallega að læra og vinna.

Búinn að vera vinna tvær síðustu helgar og því búinn að reyna vel í vikunni, því maður nennir yfirleitt ekki að læra eftir vinnu. Hún Kolla mín var 19 ára núna síðasta laugardag, ég gaf henni hjól og síðan fékk hún líka síma…segið svo að það sé ekkert merkilegt við það að vera 19 ára ha!! Við getum núna farið að hjóla saman þegar snjórinn sem kom núna um helgina er farinn…ekki langt í það, því borgin er eitt stórt slabb í dag.

Ég er kominn í bókhlöðuna og er að fara að gera örverufræðivinnubók sem ég þarf að skila fyrir páska…síðan fer ég í síðustu efnafræðitilraunina í dag á þessum vetri og fæ glertryggingargjaldið endurgreitt ef ég missi ekki mikið í gólfið í dag. Ég er búinn að brjóta eitt tilraunaglas…en það fer ekkert lengra!

Við fórum í mat til Bjarna (pabba Kollu) og Hrefnu konunnar hans á laugardaginn, þar var eldað grillkjöt ofan í afmælisbarnið og svíkur lambið ekki þegar það er komið á grillið…það er alveg ljóst. Við fórum síðan að sjá Pétur Pan í Smárabíói og notuðum frímiðana sem Brynja (mamma Kollu) gaf okkur. Hún var bara fín…ekta ævintýramynd.

Ég er núna búinn að gera skiptinemasamning við Háskólann á Akureyri, ég verð áfram skráður í HÍ en tek hluta af náminu í HA og fæ vonandi mest af því metið inn í HÍ. Það verður gaman að fara aftur norður…stefnum á að fara eins fljótt eftir próf og hægt er, ég klára 12. maí og mun þ.a.l. ekki vera í prófum á afmælinu mínu í nokkuð mörg ár…hver veit nema að það verði veisla :) sjáum til hvar maður veður búsettur….já veit einhver um lausa tveggja herbergja íbúð til leigu í sumar eða næsta árið?? Endilega hafið augu og eyru opin og láið mig vita ef þið fréttið eitthvað…best ef það væri á Brekkunni en það er svo sem ekkert endilega nauðsynlegt.

Jæja best að halda áfram við lærdóminn…skrifa vonandi fljótt aftur.

Tags: , ,

Helgin var fín

Við líffræðingarnir á 1. ári hittumst í parýi á Arnanesinu fyrir árshátíðina á laugardaginn. Það var bara nokkuð nett því við Ívar Þór fengum að koma nálægt hinni frægu HAXA-bollu sem inniheldur venjulega talvert magn af spíra og síðan hinu og þessu til að reyna að fela spírabragðið. Þetta leit semsagt vel út til að byja með en síðan fengu stelpurnar að koma of mikið með hendurnar í þetta. Spírinn er nítíu og eitthvað prósent þegar við fengum hann. Okkur var ráðlagt að þynna hann til helminga á móti vatni og síðan örlítið meira með ávöxtum og ávaxtasöfum. Við vorum búnir að gera svona helvíti magnaða uppskrift sem var svona 20% að styrkleika en þá var gjörsamlega valtað yfir okkur. Þær bætu a.m.k. tvöföldu ef ekki þreföldu magni af eplasafa útí. Við fórum að gráta í hljóði að horfa á þetta…en það þýðir ekkert að fara að gráta á svona stundu við ákváðum að gera okkur ferð út í ÁTVR og finna okkur vodka til að stykja bolluna án þess að nokkur tæki eftir. Í stuttu máli gekk þetta ekki því að það var búið að loka í Hafnafirðinum kl. 16 á laugardegi og við urðum alveg öskuillir útí þessa andskota sem stjórna því.

Þetta var svo sem í lagi því við fórum að drekka bolluna af miklum krafti þegar við komum aftur í partýið og vorum menn svo ákveðnir að láta bolluna virka að það voru ófá glösin sem runnu niður á mettíma. Hefði verið malt í bolluskálinni hefðum við fundið á okkur slíkt var magnið af bollu sem var innbyrgt.

Við fórum síðan með rútu niður í bæ en tókum þó 3. árið uppí á leiðinni. Ég var að sjálfsögðu kominn í gírinn á þessari stundu og kominn með strengi í brosvöðvana því þeir herpast alveg rosalega þegar alkóhólið nær svona tökum á manni. Kvöldið var mjög fínt á Versölum við fengum góðan mat og plötusnúðarnir voru fínir þetta kvöld.

Birkir og Björgvin komu svo náðu í mig og reyndu að gefa hóstasaft af barnum því hálsinn var eitthvað farinn að angra mig…við fórum síðan á Pravda og hittum gamlan og góðan vin Jón Víði. Eftir það fór ég heim því hálsinn var orðinn helvíti slæmur og hóstasaftin hætt að virka.

Ég mætti síðan í vinnu klukkan eitt á sunnudaginn og var nokkuð góður bara…engin þynnka sem náði tökum á mér þó ég hafi eflaust angað vel. Það er samt allt í lagi því það er svo mikil málningarlykt inn í svona búðum að það finnur enginn muninn. Í dag er heilsan síðan ekki alveg upp á sitt besta og ég fór ekki í skólann vegna hálsbólgu og aumingjaskaps.

Ætla að fara að elda pítsu með Kollu….blessss

Tags: ,

Já þrátt fyrir einn slakasta leik sem ég hef tekið þátt í handknattleik, þá bárum við í Þreyttum 3 sigur úr bítum er við spiluðum gegn SÁ (Stíflulosun Ásgeirs). Við vorum að reyna að rífa okkur í gang og taka á því en það tókst einhvern veginn aldrei, þrátt fyrir það þá unnum við með 8 mörkum og segir það kannski meira um getu hins liðsins ekki hversu góðir við vorum.

Er í HörpuSjöfn að hala inn peningum…fór í bíó í gær með Kollu á myndina “Uptown Girls” hún var bara góð.

Tags: , ,

Já maður er alltaf á fullu, er að fara að vinna laugardag og sunnudag í HörpuSjöfn. Síðan er mér boðið í partý í kvöld og afmæli á morgun. Síðan er leikur hjá Þreyttum 3 á morgun kl. 19.

Sem sagt það verður ekki lært neitt að viti þessa helgi…en það verður tekið á því í næstu viku. Þá fer ég í fullt af verklegum tímum og verð bara í skólanum og geri lítið annað.

Tags: ,

Sigur KA-manna!

Það gekk vel hjá KA í 2.fl. í gær við (því ég var með) spiluðum við Víkinga í Víkinni og höfðum betur í æsispennandi leik. Það Víkingur sem var yfir mest allan fyrri hálfleikinn en síðan tókum við okkur á eftir leikhlé þegar um 8 mín voru eftir.

Ég kom inn á í vörnina og spilaði mest allan leikinn. Það var ekki leiðinlegt að fara aftur í KA treyju merkta 23.

Ég er núna að skrópa á leik Þreytts 3 sem eru að spila við Fylki í Fylkishöllinni. Ég sendi þeim góða strauma héðan úr HörpuSjöfn þar sem ég er að hala inn peningum fyrir að sitja og búa til heimasíðu…ekki slæmt það.

Það er víst laugardagur = nammidagur í dag, ég er reyndar ekki búinn að fá mér neitt í dag en það verður örugglega í kvöld. Hef enn haldið nýársheitin sem ég setti mér og mér sýnist ég ekkert á leiðinni að falla á þeim.

Er að reyna gera bloggið flottara, gera gestabók og spjallsíðu…gengur nokkuð vel en það gæti verið að síðan verði eitthvað brengluð næstu daga.

Tags: ,

Það verður allt brjálað að gera næstu daga, er að fara að vinna um helgina og síðan að keppa í handbolta. Norðanmenn hafa beðið um liðsstyrk og að sjálfsögðu reynir maður að gera allt fyrir sitt gamla og góða félag.

Hérna er planið:

Fimmtudagur (í dag): æfing með Þreyttum 3 kl. 22:20

Föstudagur: leikur með KA í 2.fl á móti Víkingi kl. 21:00

Laugardagur: Vinna frá kl. 10-17 í HörpuSjöfn í Skeifunni (missi af leik hjá Þreyttum 3) og var líka beðinn um að spila með KA, en kemst í hvorugan leikinn ;(

Sunnudagur: leikur með KA 2.fl á móti Fram kl. 11:00 og síðan vinna kl. 13-17

Þetta verður svakapuð fyrir mann sem er ekki alveg búinn að æfa nógu vel í vetur.

En þetta er góð prófraun og gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman.

Að lokum er búinn að fá út úr þremur prófum í háskólanum, búinn að ná öllu alveg ótrúlegt en satt. Með hæst í stærðfræði af öllum fögum, það hefur nú ekki gerst síðan ég var í Gagganum eða lengra síðan. Og síðan þarf ég aldrei að fara aftur í Dýrafræði A því ég náði og gott betur, fékk 6.5 sem bjartsýnustu menn hefðu aldrei þorað að spá fyrir um.

Jæja ætla að lesa frumulíffræði til svona fjögur gangi mér vel

Tags: , , ,