Hjólatúr

You are currently browsing articles tagged Hjólatúr.

Já það var heldur betur tekið á því í morgun þegar ég ætlaði að fara með Stefáni frænda að hlaupa upp í Hlíðarfjall. Hann sagðist ætla frekar að hlaupa út í Þelamörk og fara í sund þar með familíunni, þannig að ég dreif mig bara á hjólinu upp eftir. Þetta var alveg í líkingu við það að fara upp Kirkjutröppurnar alveg á fullu, nema hvað að ég held að ég hafi verið enn þá móðari. Ég hef einu sinni hjólað sömu leið en fór þá bara upp að grindahliðinu og ætlaði að sjá hvort ég næði gamla tímanum…það gekk ekki en ég kastaði mæðinni í smá stund og hélt svo áfram alla leið upp í hótel. Þetta tók 36mín með 5 mínútna stoppi hjá grindahliðinu og var það því alveg ásætanlegur árangur miðað við að ég er að byrja hreyfa mig. Það tók aftur á móti ekki nema svona 7 mín að hjóla niður og GPS-inn mældi mig á 63km/klst þó ég hafi bara látið mig renna. Eftir þetta er ég svo búinn að borða grillaðan silung sem bræður mínir veiddu, slá garðinn og fá mér ís með Braga og Möggu. Held ég taki því bara rólega núna fram á kvöldið, Kolla fer að vinn klukkan 18, mamma og pabbi eru í Grásteini (sumarbústaðnum) og bræður mínir og Stefán frændi eru á suðurleið. Ég fer því í kjúlla til ömmu…ekki slæmt það

Tags: , ,

Jæja nú er að taka á honum stóra sínum um helgina og lesa myrkrana á milli í vefjafræðinni…var ekki alveg nógu duglegur í dag en er samt kominn á ágætis ról með þetta.

Ég fór í smá hjólatúr, kanna óhættar leiðir hérna í Breiðholtinu svo við Kolla getum hjólað saman áhyggjulaus…þær eru sko ekki á hverju strái :) Tók að sjálfsögðu tímann með nýja hraðamælinum var bara með þokkalegasta meðalhraða á þessum annars ágæta hring…það er vissulega ekki fyrir alla að fara mínar hjólaleiðir þannig að ég verð kannski að endurskoða hann áður en nýji gripurinn hennar Kollu verður prófaður í fyrsta sinn.

Ekki var það meira að sinni…yfir og út

Tags: ,