Hlaup

You are currently browsing articles tagged Hlaup.

Hljóp og sótti bílinn

Náði helvíti góðu hlaupi áðan, bíllinn var í viðgerð hjá Toyota upp á Nýbílavegi sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hversu langt var í burtu. En ég lagði af stað 17:30 og þar sem Toyota lokar kl. 18:00 þurfti ég virkilega að hlaupa eins hratt og ég gat (án þess að springa) og vitir menn ég náði því 17:59 með blóðbragð í munninum ;)

Ég keyrði síðan ansi sáttur heim þó ég hafi þurft að borga mörg þúsund fyrir viðgerðina en það er allt annað mál og mun ég skrifa um það síðar þegar þau mál vera komin á hreint.

Við borðuðum síðan Domino’s pizzu í tilefni megaviku.

Tags: ,

Afrek dagsins

  • Læra vel í verkefninu.
  • Hlaupa í Nauthólsvík.
  • Ryksuga og bóna gólfið heima.
  • Þrífa baðherbergið
  • Þvo tvær vélar og þurrka.
  • Borða góðan fiskrétt
  • Byrja að læra aftur eftir mat (mjög erfitt stundum)
  • Blogga um herlegheitin ;)

Tags: , ,

Ákvað að skella þessari skemmtilegu mynd af flugvallarhringnum mér og öðrum til gagns og gamans. Gaman að kortleggja leiðirnar sem maður er búinn að hlaupa og mæla vegalengdina með gervitunglum ;)

Tags: ,

Ákvað að skella mér í hlaupagallann í gær enda milt og fínt veður og ekki of mikið frost. Tók 20 mín skokk og síðan nokkra spretti með Hólmfríði Júlíusdóttur í botni í ipod-inum. Þetta var helvíti hressandi og maður alveg endurnærður.

Brynja Karítas fór svo að sofa um níu og þá hefði ég getað byrjað að læra á fullu en það var einhver leti í gangi.

Ég er upp á Reykjalundi að framkvæma öndunarmælingar og svo er það bara vinna í kvöld.

Tags:

…..

Ákvað nú bara að segja frá því formlega að ég fór út að hlaupa núna áðan…það hefur ekkert verið að hafst í íþróttamálum alveg síðan í snemma í sept. þegar ég tók þátt í þríþrautinni. Ég byrjaði svo sem rólega hljóp í 20 mínútur (upp Lækjargötuna og suður að skautasvellsbrekkunni, niður hana og norður að Spítalaveg 1). Ekki langt en ágætis byrjun Ég tók síðan nokkra armbeygjur, maga- og bakæfingar og teygði vel á. Núna er ég alveg endurnærður og get farið að klára fyrirlesturinn sem ég þarf að skila og flytja á morgun. Hann fjallar í stuttu máli um örverur sem framleiða vetni úr lífmassa…ákaflega spennandi er það ekki?

Jæja best að uppfæra íþróttasíðuna hérna til hliðar, núna tek ég mig á og kem mér í gott form. En best að fara að drífa sig….

Tags:

Góðan daginn, gaman að sjá að sumarið er á næsta leyti og skólinn styttist óðum. En til að ljúka skólaárinu þarf maður víst að taka próf og er það miður…því ég hef nú aldrei verið talinn vera mikill prófamaður, á það til að misskilja spurnigar og svara því sem mig langar til að svara…frekar en að svara því sem spurt er um Það má víst ekki, ekki gefur það hátt á prófi að rugla bara um daginn og veginn án þess að vita nokkurn skapaðann hlut hvað maður er að tala um. Þetta dugði reyndar í síðustu prófum en nú verður maður að einbeita sér og taka síðustu þrjár vikurnar með trompi og gefast ekki upp þó það blási á móti. Helgin var svona ágætt bara, ég fór í vinnuna báða dagana, en gat þó lært eitthvað báða dagana…hefði getað gert meira en maður býr alltaf til þessa djöfulsins pressu svo maður þarf að lesa í belg og biðu með adrenalín flæði í nokkra tíma. Les bara best undir pressu en ég á soltið mikið eftir núna svo að ekki þýðir að bíða fram á siðasta sólahring með þetta eins og oft hefur gerst í menntaskólanum. Það kemur að því að maður les eins og á að gera, allan veturinn og glósar með því. Ég og Birkir fórum og hittum félaga okkar í Þreyttum (utnadeildarliðinu okkar í handbolta) það var gaman að hitta strákana og fá sér 1-2 öllara. Birkir var á bíl að þessu sinni og nýtti ég mér það…hefur venjulega verið öfugt þannig að maður fær nú ekki mikið samviskubit yfir því Ég fór út að skokka áðan og tók nokkrar armbeygjur og magaæfingar…formið greinilega horfið, þetta litla sem var fyrir. Helvíti gott samt að fara í Elliðaárdalinn og fá smá frískt loft í lungun. Yfir og út…

Tags: , ,