Hrakfallabálkur

You are currently browsing articles tagged Hrakfallabálkur.

One of these days!!!

Við Þreyttarar tókum okkur saman í andlitinu í gær og sigruðum lið íþróttakennaranema frá Laugarvatni í gærkvöldi. Vörnin var að smella og menn að skora úr færunum sínum. Reyndar voru nokkuð mörg skot sem fór forgörðum en það er líka bara hluti leiksins. Ég sofnaði síðan bara nokkuð sáttur, því tengdó, hún Brynja lofaði mér að fara á bílnum í skólann…ekki á hverjum degi sem maður sleppur við að hlaupa eftir strætó um hálfa Reykjavík hugsaði ég.

Já ég vaknaði með bros á vör þennan morgun, stillti klukkuna hálftíma seinna en venjulega og ætlaði bara rétt að hlaupa í fötin, fá mér morgunmat og bruna á Atosinum í skólann. Allt gekk sem sagt eins og í sögu ég var á góðri leið með að komast í skólann á réttum tíma.

En nú byrjaði gæfan að snúa við mér baki, ég kem út úr blokkinni og sé að það búið að snjóa og bíllinn því kaldur. En það er nú ekki málið. Ég geng að bílnum og ætla að opna hann en lásinn er frosinn og er sama sagan með farþegahurðina og skottið…allt gjörsamlega gaddfreðið. Ég dó þó ekki ráðalaus því að ég hafði horft á fræðsluþættina sem VÍS var með í gamla daga og mundi hvernig karlinn í þeim þætti hafði sprautað lásaspreyi í lásinn og líka sett plastpoka með heitu vatni upp við skránna til að þýða hana. Þar sem ég átti ekki lásasprey fór ég aftur upp í íbúð og setti heitt vatn í poka og ætlaði að fara að rölta með það út þegar stórt gat kom á pokann, þar sem ég stóð í miðri íbúðinni tókst mér að dreifa vatni um stóran hluta íbúðarinnar. Ég mátti því þurka það upp með hálfbrunnar hendurnar sökum heita vatnsins sem frussaðis út allt. Eftir að hafa þurrkað allt upp með tveimur stórum handklæðum setti ég vatn í annan poka sem gaf sig ekki. Síðan stóð ég úti á plani með pokann upp við bílstjórahurðina í ca. 6 mín og ekki vildi hún þiðna þannig að ég reyndi við hurðina hinu megin í álíka langan tíma en hún gaf sig ekki heldur.

Ég gafst því upp á þeirri lausn og sótti hjólið mitt og ætlaði að kaupa lásasprey á næstu bensínstöð. Á meðan ég hjólaði af stað út í Shell þá geymdi ég skólatöskuna mína í hjólageymslunni því ég nennti nú ekki að vera með hana að óþörfu en þegar ég var kominn dáltið áleiðis þá rann það upp fyrir mér að peningaveskið var í skólatöskunni svo ég mátti snúa við og sækja það. Allt gekk síðan vel eftir þetta ég keypti spreyið sem svínvirkaði og ég ætlaði að fara upp og skila hjólinu í hjólageymsluna og ákvað að hafa bílinn í gangi á meðan að ég myndi hlaupa upp þá myndi hann verða fljótari að hitna. Það var hinsvegar ekkert rosalega snjallt því að húslykillinn var á sömu kippu og bíllyklarnir og því varð ég að tölta út í bíl aftur og ná í þá. Ég læsti síðan hjólinu og dreif mig síðan í skólann og er dagurinn búinn að vera ágætur síðan þá :)

Tags: