Ég tók þátt í stórskemmtilegum degi í gær þar sem allar deildir háskólans kepptu í hinum ýmsu greinum. Byrjað var að keppa niður á torgi inn í miðbæ, síðan lá leiðin að umferðarmiðstöðinni þar sem rútur biðu okkar. Ekið var út úr bænum og stoppað á Þelamörk þar sem allir fóru úr. Keppt var í hinum ýmsu greinum, þ.á.m. fótbolta þar sem keppendur voru afmarkarðir inn í reiti líkt og um fótboltaspil væri að ræða, einnig var keppt í boðhlaupum, reiptogi og kappáti. Mín deild, auðlindadeildin var í fremstu röð í öllum greinum, við unnum reiptogið með miklum látum og kappátið einnig. Við viljum einnig meina að við höfum sigrað boðhlaupin en það má deila um það…hóst…svindlarar..hóst! Eftir keppnina var síðan haldið til baka í bæinn og fylgdi ég tvíbbunum Birgi og Baldvini ásamt Brynjari vini þeirra. Við spiluðum síðan Risk – alveg magnað spil!! Við fórum síðan og fengum okkur að borða í Glerárgötu og síðan lá leiðin í Sjallann. Í Sjallanum var stiginn trylltur dans og kom ég heim um rúmlega fjögur leitið. Þetta var sem sagt alveg magnaður dagur í gær…en núna verður maður aðeins að fara að laga til og fara að læra. Ég komst að því í gær að Romm + kók + sítróna + klakkar = fínasti drykkur. Jæja ég vona að þið eigið góða helgi og KA muni laga stöðu sína í bikarleiknum sem er vægast sagt slæm eins og staðan er núna!!
You are currently browsing articles tagged KA.
Já nú er eitt próf búið, gekk ekki alveg eins og skyldi en það var svo sem ekkert sem kom mér á óvart…ákvað samt að mæta í prófið til að fá smá skell. Þá leggur maður harðar af sér í næstu próf. Ég þarf að læra í allan dag og fram á kvöld því ég er að fara að vinna í fjóra tíma á morgun…það lítur allt út fyrir það að ég komist ekki á KA-leikinn en ég sendi þeim strauma í gegnum sjónvarpið eða eitthvað. Jæja best að halda áfram að lesa örverufræðina…kveð að sinni.
Já nú er ballið að byrja, Lífmælingar eru á morgun kl. 9:00. Ég er búinn að reyna að læra eitthvað undir þetta og geri mér vonir um að ná…það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Held að þetta verði samt frekar langur dagur og mikið pælt í fervikagreiningu og öðrum gullmolum sem þeir ætlast til þess að maður kunni. Síðan er bara að vona KA-mönnum gangi allt í haginn á heimavelli í kvöld. Áfram KA!! Ég held að þessi pása sé orðin fín, búinn að taka bloggsíðu rúntinn, skoða mogann og KA-síðuna. Þannig að maður er klár í að halda áfram að lesa.
Þetta var bara góður leikur hjá KA og Fram í höllinni í gær, boltinn hraður og skemmtilegur. Ég vil óska öllum félögum mínum innilega til hamingju með sigurinn þetta var flott hjá ykkur!
Arnar Þór þetta var flottur leikur hjá þér líka þú varst bara óheppinn með lið að þessu sinni
Þreyttara gerðu í buxurnar á móti ÍR2 í dag og það stórt…hef ekki tapað svona stórt síðan ég byrjaði að æfa handbolta. En það kemur dagur eftir þennan dag, við höfðum þó gaman að þessu mest allan tíman. Meira seinna….
Það verður enginn smá leikur í dag í Laugardalshöllinni þegar mínir menn í KA koma og etja kappi við Adda Sæ og Petja fyrrum KA-menn en þeir heita víst Frammarar í dag. Þetta verða hörkuátök og mikið að gerast inn á línunni þar sem verður eflaust hart barist. Ég er í vinnunni núna en ég ætla að drífa mig um leið og ég get og hvetja mína menn
ÁFRAM KA!!
Tags: KA
Ég fór og keppti með KA-mönnum aftur í dag í 2.fl. og gerðum við jafntefli við Fram í afar slökum leik. Þetta var þriðji leikurinn á þremur dögum og því var mannskapurinn eitthvað lúinn. Þetta var samt góð ferð suður hjá þeim því að þeir náðu 5 stigum af 6. En þeir spiluðu á laugardaginn við FH og unnu auðveldlega með 9 mörkum. Þá var ég bara að vinna eins og ég er reyndar að gera núna og missti því af þeirri viðureign. Þreyttir 3 voru líka að keppa í gær en þeir töpuðu fyrir Fylki.
Ég hef það ekki lengra að þessu sinni, lítið í fréttum…klára að vinna eftir klukkutíma og fer þá í mat hjá Bjarna og Hrefnu…það verður helvíti fínt eins og alltaf…yfir og út.
Það gekk vel hjá KA í 2.fl. í gær við (því ég var með) spiluðum við Víkinga í Víkinni og höfðum betur í æsispennandi leik. Það Víkingur sem var yfir mest allan fyrri hálfleikinn en síðan tókum við okkur á eftir leikhlé þegar um 8 mín voru eftir.
Ég kom inn á í vörnina og spilaði mest allan leikinn. Það var ekki leiðinlegt að fara aftur í KA treyju merkta 23.
Ég er núna að skrópa á leik Þreytts 3 sem eru að spila við Fylki í Fylkishöllinni. Ég sendi þeim góða strauma héðan úr HörpuSjöfn þar sem ég er að hala inn peningum fyrir að sitja og búa til heimasíðu…ekki slæmt það.
Það er víst laugardagur = nammidagur í dag, ég er reyndar ekki búinn að fá mér neitt í dag en það verður örugglega í kvöld. Hef enn haldið nýársheitin sem ég setti mér og mér sýnist ég ekkert á leiðinni að falla á þeim.
Er að reyna gera bloggið flottara, gera gestabók og spjallsíðu…gengur nokkuð vel en það gæti verið að síðan verði eitthvað brengluð næstu daga.
Tags: HarpaSjöfn, KA
Það verður allt brjálað að gera næstu daga, er að fara að vinna um helgina og síðan að keppa í handbolta. Norðanmenn hafa beðið um liðsstyrk og að sjálfsögðu reynir maður að gera allt fyrir sitt gamla og góða félag.
Hérna er planið:
Fimmtudagur (í dag): æfing með Þreyttum 3 kl. 22:20
Föstudagur: leikur með KA í 2.fl á móti Víkingi kl. 21:00
Laugardagur: Vinna frá kl. 10-17 í HörpuSjöfn í Skeifunni (missi af leik hjá Þreyttum 3) og var líka beðinn um að spila með KA, en kemst í hvorugan leikinn ;(
Sunnudagur: leikur með KA 2.fl á móti Fram kl. 11:00 og síðan vinna kl. 13-17
Þetta verður svakapuð fyrir mann sem er ekki alveg búinn að æfa nógu vel í vetur.
En þetta er góð prófraun og gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman.
Að lokum er búinn að fá út úr þremur prófum í háskólanum, búinn að ná öllu alveg ótrúlegt en satt. Með hæst í stærðfræði af öllum fögum, það hefur nú ekki gerst síðan ég var í Gagganum eða lengra síðan. Og síðan þarf ég aldrei að fara aftur í Dýrafræði A því ég náði og gott betur, fékk 6.5 sem bjartsýnustu menn hefðu aldrei þorað að spá fyrir um.
Jæja ætla að lesa frumulíffræði til svona fjögur gangi mér vel
Tags: Dýrafræði, HarpaSjöfn, KA, Stærðfræði
