Klipping

You are currently browsing articles tagged Klipping.

Já nú er þetta alveg að verða búið, bara eitt próf eftir klukkan 13:30-16:30 og síðan flug heim klukkan 19:00. Það verður magnað að komast norður í vinnuna. Maður verður svo að fara að kaupa sér kort í ræktina strax og fara að taka á því. Ég og Kolla kláruðum að pakka í dag og sendum allt draslið með FMN…þannig að það verður sofið á dýnum í Vesturberginu í nótt en það verður þó eitthvað lítið því að ég þarf að læra fram á nótt. Núna tekur maður á honum stóra sínum og ekkert múður. Ég og bræður mínir fórum í klippingu í gær til Kristínar og var hún ekki lengi að laga okkur til. Við Áki erum nú stutthærðir en Bragi aðeins minni lubbi. Það er allt annað að sjá Thoroddsenana núna og hafa fjöldinn allur af fyrirsætustörfum borist til okkar en það er verið að fara yfir tilboðin í þessum töluðu orðum. Eitt hljómaði mjög vel, þar eigum við að sitja fyrir á lendarskýlum í eina viku í Frakklandi, þetta er náttúrulega ekki slæmt tilboð þar sem við fjölskyldan erum að fagna 50 ára afmæli móður minnar á sama tíma og hver veit nema að við sláum til. Jæja best að fara að læra meira, mér lýst ekkert á blikuna hjá Valsmönnum…þeir eru langt undir og stutt til leiksloka.

Tags: ,

Nú eru bara tveir dagar eftir að læra og svo próf á miðvikudaginn. Ætla að vera duglegur til að verða fimm, þá förum við Bragi bróðir í klippingu. Eru að spá í að vera í stíl í þetta skiptið, taka bara allt af en halda síddinni í hnakkanum. Sítt að aftan er alveg að gera sig í dag og ætlum við því að taka þetta alvarlega og safna í stert Það var ekki margt sem að ég gerði um helgina, þurfti að vinna í gær og síðan horfði ég á Haukana taka Valsmenn nokkuð létt í handboltanum í sjónvarpinu. Valur verður að fara að taka sig á svo að skoðannakönnun síðunnar muni koma með rétt úrslit. Allir sem hafa tekið þátt í henni hafa spáð Val sigri, það vona ég líka að þeir geri…en betur má ef duga skal! Ég og flugmaðurinn fórum í golf um daginn í elliðaárdalnum, fundum fínt svæði með gríni, sadngrifju og fínni brekku til að slá niður. Ég var eitthvað hægri sinnaður í sveiflunni því boltarnir fóru flestir í fallegu sveig lengst til hægri. Flugmaðurinn örvhennti var ekkert að hika við þetta og sló allar kúlurnar sínar svona líka mörghundruð metra. Held að hann sé kominn í rétta sportið…getur líka verið að öll þessi prófaþreyta hafi hjálpað honum og hann hafi séð höfuð kennara sinna í stað boltanna og bara látið vaða í þá. Jamm það var fínnt í golfinu en ég verð greinilega að fara að æfa mig betur ef ég ætla að halda í Tiger 2. Best að fara að læra núna, ég verð að skipuleggja tímann vel á lokasprettinum svo að hægt sé að brasa eitthvað í fluttningum með prófalestrinum.

Tags: , , ,

Já á maður ekki að velja íslenskt…það segir í auglýsingunni a.m.k. Maður verður að reyna að vera duglegri að skrifa fyrst maður er kominn með nýja síðu. Ég ætla nú samt ekki að eyða hinni síðunni, verð bara með blogg á þeim báðum. Það er svo auðvelt að skrifa eina frétt og kópera hana á milli að ég held ég eigi ekki eftir að skrifa tvær mismunandi fréttir með mismunandi orðalagi fyrir síðurnar. Gæti samt verið gaman, þeir sem vilja harðan og kjaftforan stíl myndu þá velja gömlu síðuna en þeir sem vilja fallegar settningar með ljóðum og háfleygu orðalagi myndu velja þessa :D Ég held ég bíði nú samt með það í bili…

Ég er búinn að setja upp skoðanakönnun á nýju síðunni minni endilega takið þátt í henni…

Það er nú ekki margt í fréttum, fór í klippingu í gær og missti ca. 2 kg af höfðinu…alveg magnað :) . Þarf að skila agalega mikið af verkefnum fyrir páska þannig að það er betra að fara að byrja á einhverju af þessu.

Slóðin á nýju síðuna mína er http://blog.central.is/egillthor.

Tags: ,