lífeðlisfræði

You are currently browsing articles tagged lífeðlisfræði.

Partý hægri vinstri…

Það voru víða samkvæmin í gær, Dalvíkingar að halda stórt samkvæmi fyrir sunnan og Haukur Heiðar bauð nokkrum gömlum félögum úr handboltanum til sín í gær. Ég leit aðeins við og fylgdist með félögum mínum taka á því í drykkjuleik og var það mesta skemmtun. Það er alltaf gaman að hitta félagana í góðum gír og það hefði verið gaman að bruna suður líka en það kemur víst annað partý eftir þetta…núna verða skólabækurnar að hafa forganginn. Ég ætla að fara að halda áfram að krifja þessar djöfuls vísindagreinar svo maður geti farið að skrifa eitthvað niður á blað. Þær þurfa víst að vera tíu blaðsíðurnar um blóðrásar kerfi og almenna líkamsstarfsemi fiska sem lifa við suðurskautslandið…þannig að ég held að það sé best að vinda sér í þetta.

Ég setti um nýja skoðana könnun svona til að kanna áhuga manna á 5 ára rejúníón í Gagganum sem haldið verður í Þórheimilinu þann 28. des.

Tags: ,

Ég vaknaði kl. 7 og var kominn út á Bjarg kl. 8 þar sem ég hitti Hannes Inga. Við fórum beint að lyfta því að ég var búinn að hita mig upp á því að hjóla (það var ekki þurr þráður á mér) og Hannes var búinn að hlaupa. Ég byrjaði svo vel…fór í þríhöfðann beint á eftir Hannesi, við lágum á bekk og áttum að sveifla þessu rétt fyrir ofan hausinn og rétta úr höndunum. Það gekk ekki betur en svo að ég hálf missti lóðið beint á ennið á mér því að ég réði engan veginn við þetta….er með smá kúlu núna enda ca. 27kg sem ég skallaði. Þetta var bara til að kveikja í manni og ég tók vel á því með Hannesi sem leyndi gríðarlega á sér og henti hverri þyngdinni á fætur annarri upp í háloftin. Það er fínt að vera með svona kögglum að lyfta, þá hefur maður meira að keppa að.

Eftir þetta fór ég í sturtu og aðeins í pottinn og hélt síðan upp í skóla…var þar í smá stund að læra erfðafræði og fór svo í fyrirlestur frá 12:30-17:00. Þetta hefði getað verið langt og leiðinlegt af því að það er nú einu sinni föstudagur og mann langar ekki mikið til að vera svona lengi í skólanum, en þetta var helvíti fínn fyrirlestur um hormón og áhrif þeirra í líkamanum. Mér finnst lífeðlisfræðin alveg helvíti skemmtileg og væri alveg til í að vinna eitthvað við hana í framtíðinni. En við skulum bara bíða og sjá….
Ég fór í mat í Espilund þar sem Kolla var að vinna…mamma eldaði alveg helv.. góða nautasteik, vel blóðug og fín..

Núna erum við Kolla bara heima í tölvunum og veit ekki hvort við gerum eitthvað í kvöld enda Kolla sjálfsagt bara sátt með rólegheitin búin að vera úti tvö kvöld í vikunni og ætlar kannski út á morgun í afmæli. Ég held maður ætti að vera duglegur og skrifa ritgerð á morgun í lífeðlisfræðinni…var að hugsa um að skrifa um blóðrás fiska hvernig kerfið í þeim virkar þegar þeir eru í ísköldum sjó…það verður að skrifa um einhverja lífeðlisfræði hjá fiskum, sumir ætla að skrifa um sjón fiska og aðrir um smoltun (þegar fiskar fara úr ferskvatni í sjó) svo maður verður að finna eitthvað annað. Hefði verið til í að skrifa um sjónina (var nú einu sinni með 10 fyrir líffræðiritgerðina mína um augað í Gagganum í 10. bekk ). En það er víst til allur andskotinn á netinu og maður verður að skoða vísindagreinar og velja sér eitthvað gott á morgun, einhverjar hugmyndir frá ykkur?

Jæja þetta var þá dagbókin fyrir 29.okt. 2004 best að fara að hætta þessu bulli, hef ekki meira að segja ykkur í fréttum að sinni…

Tags: ,