Lyftingar

You are currently browsing articles tagged Lyftingar.

Ég og Birkir háður mikla og drengilega keppni á Bjargi áðan, staðið hefur undirbúningur síðast liðinn mánuðinn, aðallega með því að lesa okkur til í bókum. Ég í lífeðlisfræði og sjá hvernig líkaminn tekur á því og Birkir gluggað í verkfræðibækur, pælt í burðarþoli og eðlisfræði hvernig á að vippa stönginni upp. Það mátti ekki miklu muna í þessari keppni. Reglur voru þær að mismunur á kílófjölda í bekkpressu og mismunur í fituprósentu margfaldað með tveimur var borið saman. Hér koma tölurnar:

Bekkpressa: Birkir 100kg og Egill 75kg –> mismunur 100-75 = 25

Fituprósenta Birkir 19,2% og Egill 7,4% –> 2 x mismunur 2 x (19,2-7,4) = 2 x 11,8 = 23,6

Þetta endaði því 25 vs. 23,6 Birki í hag og er hann vel að sigrinum kominn. Það máti þó ekki miklu muna, ég var næstum með 80kg og þá hefði munurinn bara verið 20 í bekknum og ég hefði unnið en Birkir lyfit líka 115kg í nóvember þegar við hittumst síðast í upphitun fyrir þessa keppni og því hefði þetta líka getað verið rúst hjá honum. Það var allavega gaman að þessu og ætti að gera að hefð um hver jól eins og Birkir komst að orði. Spurning hvort við keppum í sömu grein næstu jól eða finnum upp á einhverju nýju?

Tags: , ,

Ég fæ hrós dagsins, fyrir að hjóla í skólann með 20kg af töskum, gera verkefni til að verða 6, hjóla þá í ræktina og taka á því með Hannesi og hjóla svo heim í brjálaðri sunnan átt og komast hvorki lönd né strönd.

Ég var að tala við Thoroddsen-inn í miðið og myndarann og lá vel á þeim við vínsmökkun í Barmahlíðinni. Þeir sögðust vera búnir að smakka hvern einasta millilíter úr 3 flöskum og söðgu að árgangurinn væri góður

Þeir voru að peppa í mig upp í það að koma suður í Dalvíkurfesteval í Reykjavík þar sem margt stórmennið mun koma. Maður er náttúrulega í verkefnavinnu upp fyrir haus og staðann ekki beint þannig að maður hafi efni á pakkanum hvað varðar peninga og lærdóm. Það á samt að vera búið að plögga far fram og til baka og mat ofan í litla labba kútinn. Þannig að þetta er mjög freistandi boð…en við skulum bara sjá hvernig staðan verður á morgun, því þá á ég að gefa lokasvar

Best að fara að skríða í koju og hvíla kjötfjöllin sem eru að safnast utan á skrokknum.

Tags: ,

Góðan daginn…

Maður er snemma að skrifa þennan daginn, ég er mættur í skólann og er að fara í tíma eftir 10 mínútur. Ég vaknaði kl. 6:00 og fór í ræktina með Hannesi Inga fyrir skóla. Við erum búnir að vera helvíti duglegir í þessari viku búnir að fara fjórum sinnum. En ætli maður skrifi ekki meira seinna, ætlaði bara að monta mig yfir allri þessari líkamsrækt. Hafið þið það bara sem best í dag…

Tags:

Ég vaknaði kl. 7 og var kominn út á Bjarg kl. 8 þar sem ég hitti Hannes Inga. Við fórum beint að lyfta því að ég var búinn að hita mig upp á því að hjóla (það var ekki þurr þráður á mér) og Hannes var búinn að hlaupa. Ég byrjaði svo vel…fór í þríhöfðann beint á eftir Hannesi, við lágum á bekk og áttum að sveifla þessu rétt fyrir ofan hausinn og rétta úr höndunum. Það gekk ekki betur en svo að ég hálf missti lóðið beint á ennið á mér því að ég réði engan veginn við þetta….er með smá kúlu núna enda ca. 27kg sem ég skallaði. Þetta var bara til að kveikja í manni og ég tók vel á því með Hannesi sem leyndi gríðarlega á sér og henti hverri þyngdinni á fætur annarri upp í háloftin. Það er fínt að vera með svona kögglum að lyfta, þá hefur maður meira að keppa að.

Eftir þetta fór ég í sturtu og aðeins í pottinn og hélt síðan upp í skóla…var þar í smá stund að læra erfðafræði og fór svo í fyrirlestur frá 12:30-17:00. Þetta hefði getað verið langt og leiðinlegt af því að það er nú einu sinni föstudagur og mann langar ekki mikið til að vera svona lengi í skólanum, en þetta var helvíti fínn fyrirlestur um hormón og áhrif þeirra í líkamanum. Mér finnst lífeðlisfræðin alveg helvíti skemmtileg og væri alveg til í að vinna eitthvað við hana í framtíðinni. En við skulum bara bíða og sjá….
Ég fór í mat í Espilund þar sem Kolla var að vinna…mamma eldaði alveg helv.. góða nautasteik, vel blóðug og fín..

Núna erum við Kolla bara heima í tölvunum og veit ekki hvort við gerum eitthvað í kvöld enda Kolla sjálfsagt bara sátt með rólegheitin búin að vera úti tvö kvöld í vikunni og ætlar kannski út á morgun í afmæli. Ég held maður ætti að vera duglegur og skrifa ritgerð á morgun í lífeðlisfræðinni…var að hugsa um að skrifa um blóðrás fiska hvernig kerfið í þeim virkar þegar þeir eru í ísköldum sjó…það verður að skrifa um einhverja lífeðlisfræði hjá fiskum, sumir ætla að skrifa um sjón fiska og aðrir um smoltun (þegar fiskar fara úr ferskvatni í sjó) svo maður verður að finna eitthvað annað. Hefði verið til í að skrifa um sjónina (var nú einu sinni með 10 fyrir líffræðiritgerðina mína um augað í Gagganum í 10. bekk ). En það er víst til allur andskotinn á netinu og maður verður að skoða vísindagreinar og velja sér eitthvað gott á morgun, einhverjar hugmyndir frá ykkur?

Jæja þetta var þá dagbókin fyrir 29.okt. 2004 best að fara að hætta þessu bulli, hef ekki meira að segja ykkur í fréttum að sinni…

Tags: ,

Já það er óhætt að monta sig aðeins yfir lestri síðustu daga…því seinni önnin byrjaði með svipuðum hætti og sú fyrri. Ég og Björgvin fórum í Hlöðuna laugardag og sunnudag…Birkir bauð okkur í graut á laugardaginn og peppaði okkur áfram með því að segja vera að fara út í góða veðrið að mynda og sagðist ætla að kíkja á “Strandið” með nafna skipsins sem strandaði Baldvini Þorsteins.

Það var síðan tekið á því á mánudaginn í Hlöðunni og á bókasafninu í Öskju (nýja náttúrufræðihúsinu) eins og á þriðjudaginn. Þannig að maður er að komast í ham, enda verður ekki mikið lært um helgina…ég að fara að vinna báða dagana í Skeifunni.

Bjöggi dreif mig með sér í ræktina í gær þannig að tveggja vikna frí er á enda þar…var veikur í viku og að aumingjast í aðra. En það var tekið hraustlega á því eins og vanalega og byrjað á sömu þyngdum og fyrir hálfum mánuði. Strengirnir eru ekki enn komnir en það ekki útilokað að maður hafi verið aðeins stífur í morgun.

Jæja ég ætla að fara að skríða í bólið til Kollu…hún er að lesa undir sálfræðipróf en ég ætla nú bara að snúa mér á hina og safna kröftum fyrir morgundaginn.

Tags: ,

Sprengidagur

Já og ég sko búinn að borða mikið af saltkjöti og baunum. Reyndar grunar mig að þetta hafi verið aðeins of salt því ég held ég sé búinn með ein 4-5 stór vatnsglös núna nokkrum tímum síðar. Gott var það alla vega þó það sé ekki alveg það hollasta en ætli það drepi mann að borða þetta örfáu sinnum á ári, nei held ekki.

Ég fór í ræktina eftir skóla í dag eins og ég gerði reyndar líka í gær og var tekið heldur betur á því. Í dag var bekkpressu dagur og því tekið hraustlega á því, maður er svo sem ekki kominn með neinar rosalegar þyngdir strax en það á eftir að koma fljótlega með þessu áfram haldi. Svona átök voru gamlar konur á eftirlaunum greinilega hrifnar af því þær gjörsamlega góndu á mig þegar ég var hér um bil farinn að öskra í sumum tækjunum. Var sem sagt bara nokkuð sáttur með daginn í ræktinni og þyngdist um nokkur kíló af sjálfsáliti þó svo að vigtin inn í klefa sýndi svipaða tölu og síðast…hún mælir hins vegar bara líkamsþyngd en ekki sjálfsálitið sem sveif í kring um mig eftit að hafa sett pinnan neðar í þyngri lóð í öllum tækjunum sem ég fór í í dag. Hvort það var vegna þess að gömlu konurnar í salnum voru flestar háaldraðar og bara í upphitunarþyngdunum eða ég að bæta mig veit ég ekki…en það var alla vega góð tilfining! :)

Gaman væri nú að taka sig almennilega á og komast í gott form áður en sumarið kemur, því það er nú ekk mjög líklegt að maður nenni að hanga inni og lyfta þá. Þar sem veturinn er búinn að vera mjög snjósamur eða a.m.k. á köflum, þá ætla ég að gerast svo djarfur að spá góðu veðri í sumar og munum við sjá mikið af berjum í ágúst.

Tags: ,

Ég er búinn að vera duglegur að reyna að hreyfa mig í þessari viku og nú er stefnan að koma sér í almennilegt form. Ég fór að lyfta á mánudag, keppti á miðvikudag í handboltanum við HR, fór svo á handboltaæfingu á fimmtudag, lyfti á föstudag og í dag sunnudag. Þannig að ég er helvíti ánægður með útkomu vikunnar og stefni á að fylgja þessu eftir næstu vikur svo maður komist í almennilegt form. Það er síðan leikur á morgun upp á Laugarvatni kl. 8 á staðartíma svo að það verður nóg að gera á morgun.

Tags: ,