MA

You are currently browsing articles tagged MA.

Jæja loksins er það komið á hreint að ég er að fara til Finnlands í sumar. Ég var svo heppinn að fá þrjá styrki í dag, einn frá rannsóknarnámssjóði, einn frá Hjartaheill og einn frá Félagi íslenskra lífeðlisfræðinga. Ég næ að dekka allan kostnað með þessum styrkjum og get því leyft mér að fara.

Ég mun flytja erindi um verkefnið mitt á Norrænu hjartaendurhæfingar ráðstefnunni sem fer fram í Hämeenlinna sem er 100km frá Helsingi. Ráðstefnan er 12-14. júní og ég ætla mér bara að vera í þrjár nætur í Finnlandi því ég þarf að drífa mig norður á Akureyri að fagna 5 ára reunion frá MA með bekkjarfélögum mínum ;) Það er óvissuferð 15. júní og síðan er 16. júní með öllum afmælisárgöngunum í íþróttahöllinni.

Hjólað í vinnuna átakið er enn í gangi og verður út næstu viku, ég ætla að reyna að halda sama dampi og klára þetta átak með stæl.

Tags: , , ,

Mögnuð helgi

Já þetta var fín helgi ég skemmti mér mjög vel. Ég mætti með Kollu í Grástein þar sem við borðuðum grillað lambalæri…það var svo gott veður að við borðuðum úti. Síðan héldum við Kolla heim og ég fór til Jóns Víðis í partý en Kolla var bara heima enda þurfi hún að vakna og vinna bæði á FSA og á Gallup. Partýið var eins og þau gerast best…við fengum að kynnast góðum vini Jóns og Rúnars sem þeir kölluðu Ásthildi Helgadóttur…hún var úr 36mm breiðri slöngu ca. hálfur metri að legnd. Á öðrum endanum var síðan trekt sem hafði verið teypuð við slönguendann. Síðan voru hálfslíters bjórflöskur og dósir tæmdar ofan í Ásthildi…síðan fóru menn á hnéin og settu hinn endann við munninn og gáfu merki er þeir voru tilbúnir, þá lyfti Rúnar Ásthildi upp í hér um bil lóðrétta stöðu og þá rann ölið með miklum látum út úr henni og ofan í þann sem var á hnjánum. Mér þykir bjór nú ekkert sérstakur og er enginn þambari en þarna gekk áfengið út úr Ásthildi ofan í mig og svona 7 sekúndum ekki meira…venjulega er ég svona hálftíma með einn bjór þannig að þetta var alveg rosalegt. Eftir að flestir höfðu reynt við Ásthildi, löggan búin að droppa við þá var farið í Sjallann á Jet Black Joe. Það var nú ekki mjög fjölmennt en það var alveg gríðarlegt stuð í félögunum og klukkan allt í einu orðin hálf fimm. Ég skreið síðan á koddan svona um fimm leytið eftir að hafa fengið mér göngu heim. Nú man ég afhverju ég djammaði svona sjaldan fyrir sunnan, þar er sko ekki hægt að rölta heim af djamminu í rólegheitunum. Þar kosta kvöldið a.m.k. 2000 kalli meira bara út af því að maður neiðist til að taka taxa. Sunnudagurinn var síðan mjög einfaldur, ég vaknaði nokkuð aumur í hausnum ég hef greinilega rekið hausinn í svefni eða þá að hún Ásthildur er ekki öll þar sem hún er séð Eftir að hafa skriðið á fætur um þrjú leytið horfði ég á fótbolta og formúluna þangað til að enn ein veislan var haldin hér í Espilundi. Áki og Anna eru komin norður því þau er 10 ára stúdentar frá MA. Það var því allir mættir nema Stefán og kó en við hittum þau nú fljótlega því það styttist í Frakklandsferðina. Við förum út á Laugardaginn næsta og ég var að kaupa miða handa henni Kollu minni í dag þannig að það mæta allir þangað. Í dag tók ég ágætis æfingu, fór í sund og synnti 1 km. Ætlaði að vera 20 mín en formið var greinilega ekki alveg komið, var 23 mín…það er líka miklu flottari tala. Ef því eitthvað að stefna að…þarf að fara undir 20 mínúturnar í lauginni og undir 30 mínúturnar upp í Hlíðarfjall. Jæja skrifa meira að sinni…það verður bekkjapartý á morgun á Dagverðareyri hjá 4.U og síðan hjá Önnu Guðrúnu 16. júní þannig að það er stíft programm framundan.

Tags: , , , ,