Í dag er páskadagur, ég er búinn að opna páskaeggið mitt og þakka ég Kollu minn kærlega fyrir það. Nóa síríus eggin klikka ekki, mitt var númer 4…málshátturinn var “þeim er búið fall sem byrgir sín augu”.
Vona að þið hafið það jafn gott og ég er búinn að hafa það. Við fengum lambahrygg í gær hérna í Vesturberginu og fáum nautasnitsel í kvöld
Verkefni dagsins er að gefa köttunum Sóloni og Nökkva að borða…þeir verða að fá páskamatinn sinn á meðan eins og við. Er eitthvað að reyna að læra á efnafræðiforrit svo ég verði fljótari að henda inn efnafræðiglósunum mínum í tölvuna. Þetta er alveg magnað forrit sem Jóhann Sigurjónsson efnafræðikennari í MA lét mig fá fyrir mörgum árum og ég hef aldrei skoðað almennilega fyrr en núna.
Kveð að sinni……
