Mývatnssveit

You are currently browsing articles tagged Mývatnssveit.

Jæja nú fer ég að skrifa hérna daglega ef ekki oft á dag…þetta gengur ekki lengur. Þar sem að ég kominn með þessa súper ADSL-tengingu, þá er hreinlega ekki hægt að afsaka sig lengur…nú verður sko haldin dagbók (úfff..nú verður maður að standa sig ).

Það er annar allt gott að frétta af mér, síðasta helgi var mjög fín, fór á smá skrall með Birki og Björgvini…fórum í bíó fyrst á Man on Fire (ég og Björgvin) á meðan byrjaði Birkir að sulla í sig hvítvíni af miklum móð. Eftir svakalega mynd þá fórum við niður í Spítalaveg 1 og rákum Kollu og vinkonur hennar út. Síðan var ein absolut mandarin flaska kláruð…týndum tappanum eftir að hafa fyllt á fyrstu glösin og urðum því að klára úr flöskunni. Kíktum aðeins í bæinn…ég var extra stutt bara rétt borgaði okkur inn á Óla Palla Sjallanum, því Birkir hafði nú einu sinni boðið upp á vínið. Birkir og Björgvin fóru svo á Kaffi Ak en ég rölti heim með Kollu sem ég hitti í Sjallanum. Í gær fór ég með skólanum að safna hitakærum örverum úr hverum í Mývatnssveit. Þetta var fínasta ferð, nú veit ég hvar Græna lónið þeirra Mývetninga er og ætla ég að drífa mig þangað sem allra fyrst. Eftir sýnatökuna fórum við svo til pabba einnar bekkjarsystur minnar. Hann reykir silung og selur hann í allar betri búðir, en þau búa á Geiteyjarströnd og ef þið sjáið silung þannig merktan útí Nóatúni eða Hagkaup eða bara einhver staðar þá mæli ég hiklaust með honum. Við fengum rúgbrauð sem búið er til í hverunum og algjört gómsæti líka. Í dag var síðan rok og rigning og gerðist harla fátt, nema hvað að Kolla vara að busa, borða úti með busunum og fór svo á busaball…þannig að ég fór í mat í Espilundinn til mömmu…og ekki klikkaði maturinn þar á bæ frekar en venjulega. Á morgun er síðan frí í skólanum hjá mér þannig að maður reynir að lesa námsbækurnar á fullu. Hafið það gott…yfir og út!

Tags: , , ,