Já það gerðist eitthvað sem enginn veit í nótt, því að um 5 leytið þegar ég ætlaði að brölta á fætur til að klára fyrirlesturinn minn í líftæknilegri örverufræði, þá fann ég þennan skerandi verk í olnboganum. Ég tel mig nú ekki vera mikinn vælukjóa og frekar harður af mér, en þetta helvíti var sko vont. Ég gat ekki gert neitt með hægri hendinni fyrstu tímanna, borðaði, burstaði mig og allt með vinstri…
Ég hef þrjár kenningar um það hvað olli þessum verk:1) Ég hef tekið aðeins of margar armbeygjur í gær og tognað á vöðva. 2) Ég hef sofið ofan á hendinni á mér í alla nótt (maður er nú samt yfirleitt fljótari að jafna sig á því). 3) Ég hef lamið Kollu í svefni og hún hefur sótt hamar og látið mig hafa það (hefði líklega vaknað…og þó ).
Þetta gæti líka verið sambland af 1 og 2 en það er helvíti hart að sjá sig togna í armbeygjum, ég gat gert næstum endalausar armbeygjur í handboltanum og þessir vöðvar ættu nú að kannast við hreyfinguna….en svona er þetta maður er bara í engu formi og byrjar aðeins of geyst.
Já það var víst fleira skemmtilegt sem ég afrekaði í dag…eða ekki! Ég átti að flytja fyrirlestur í 1. tíma í morgun og þar sem þolinmæðin var alveg farin út í hafsauga í gærkvöldi ákvað ég bara að fara að sofa. Ég tók því daginn snemma eins og ég koma að áðan…en þetta var greinilega ekki minn dagur því að ég náði ekki að klára að setja fyrirlesturinn almennilega upp og var að reyna að ljúka því á meðan að hinir nemendurnir 3 í tímanum fluttu sinn (erum bara 5 og ein var víst með ælupest).
Þegar ég átti að byrja þá vildi ekki betur til en svo að helvítis floppy diskurinn virkaði fínt í minni tölvu en engan veginn í kennslutölvunni, ég fékk því lánaðan annan disk en það var sama sagan sá diskur var fullur og því byrjaði ég að tæma hann og setti svo fyrirlesturinn á hann. En tölvan mín gerir greinilega eitthvað slæmt við alla diska eða helvítis kennslutölvan var með ónýtt floppy drif. Nú voru góð ráð dýr og þar sem að fyrirlesturinn var fastur í tölvunni og ekkert þráðlaust netsamband til að reyna að senda kvikindið þá þurfti ég að taka tölvuna úr sambandi og labba með hana niður á næstu hæð þar sem netsamband er. Þetta gekk vel og nú var bara að koma sér upp í stofu og byrja…en nei þá var tölvukvikindið búið með allt rafmagnið (allar þessar 30 sekúndur sem hún getur haldið sér í gangi án þess að vera í sambandi), ég gat því ekki byrjað fyrirlesturinn þar sem ég var ekki búinn að prenta blöðin sem ég ætlaði mér að lesa upp af og ekki var hægt að prenta þau á staðnum þar sem nýja fullkomna rannsóknarhúsið er ekki með neina prentara fyrir nemendur Ég lofaði því kennara og nemendum að hlusta á eina góða sögu um það hvernig maður fer að því að vera 17 tíma frá Frakklandi til Íslands og þegar hún var búin (svona 5-7mín þá var tölvan búin að starta sér og opna wordið) gat ég byrjað á fyrirlestrinum.
Fyrirlesturinn gekk síðan nokkuð vel miðað við að ég hafði ekki hugmynd um hvað þessi vísindagrein fjallaði um og ég bullaði um eitthvað sem tengdist greininni harla lítið…enda kom á daginn að ég hafði valið mér erfiðustu greinina af 10 mögulegum og kennarinn minn sem las yfir 4-5 greinar í gær sagði að hann hefði varið helmingnum af tímanum í mína grein…alveg frábært.
Já kvörtunardeildin er hér með lokuð, alveg með eindæmum hvað maður getur stundum verið óheppinn. Ég er núna að fara að gera haf- og veðurfræðiverkefni og læra undir erfðafræði. Síðan ætlum við að kíkja á Þóru, Svein og litla frænda á Sökku í kvöld þegar Anna Guðrún og Hannes eru búin í skólanum (ca. 7 leytið).
Hafið það sem allra best….!
