Ég er kominn í páskafrí…ííííhhhaaaa Ég er nú samt mættur í bókhlöðuna og er að klára efnafræðiskýrslu og sitthvað fleira. Ég og Kolla verðum að vinna slatta í þessu fríi og er það bara gott mál að vinna og læra á milli þess sem maður úðar í sig páskaeggjum. Ég held við verðum að vinna eitthvað heima líka því nú er verið að taka baðið í gegn og mölva allar flísarnar niður. Brynja ætlar að senda mig í HörpuSjöfn á eftir og ég á að kaupa spartl, kítti, málingu, sandpappír og ef til vill eitthvað fleira. Við vorum vinsamlegast beðin um að gera eitthvað í málunum því það lekur meðfram glugganum og niður á næstu hæð inn í einhverja geymslu þegar við erum í sturtu. Það verður því eitthvað lítið sturtað sig heima á næstunni…það er enn hægt að fara í bað en þeir sem eru um einn og nítíu á hæð skilja þegar ég segi að það er ekki þægilegt að liggja ofan í venjulegri stærð af baðkari. Annað hvort standa lappirnar upp úr eða allur efri hlutinn…þannig að ég kýs frekar heita pottinn í sundlaugunum heldur en baðkarið heima. Ætla að halda áfram með efnafræðina…hafið það sem best í dag!
You are currently browsing articles tagged Páskafrí.
Tags: HarpaSjöfn, Páskafrí
