Portúgal

You are currently browsing articles tagged Portúgal.

Ég vildi bara láta vita af því að ég er á lífi, það var magnað á Portúgal með Kollu minni. Það er núna vika síðan við komum heim og líður okkur mjög vel í Spítalaveginum. Kolla byrjar svo í MA á morgun. Ég ætla að reyna að vera duglegur að skrifa hérna inn í vetur til að láta vita af mér. Við erum að fá ADSL í Spítalaveginn seinna í vikunni, þannig að það ætti ekki að vanta fréttirnar af Norðurlandinu á veraldarvefnum í vetur.

Tags: ,

10 dagar í portúgal!!

Já það er farið að styttast í ferðina út, við Kolla förum út þann 24. ágúst og komum tveimur vikum síðar. Það er allt gott að frétta annars, búið að vera alveg ótrúlega gott veður á Íslandi undanfarnar vikur…maður vonar að það verði jafn gott úti á Portúgal. Meira síðar…ætla að skreppa í berjamó með Kollu og fara svo í Grástein til mömmu og pabba.

Tags: ,