Fór á sjó tvisvar sinnum í dag, fyrst með sjávarlíftækni og síðan með haf- og veðurfræði. Í fyrra skiptið vorum við að safna lífverum af botninum til að skoða og setja í fiskabúrið í rannsóknarhúsinu (Borgum) en í seinna vorum við aðallega að mæla hitastig, seltu, þrýsing og súrefnismagn í sjónum. Þetta var fínasti dagur á sjónum, svoltið kalt í morgun en allt í lagi samt. Núna er Kolla að leggja sig og ég að elda mjólkurgraut. Stefnan er að læra fram eftir kvöldi og vakna síðan snemma og fara með Hannesi Inga á Bjarg fyrir skóla.
Meira var það nú ekki að sinni…góðar stundir…!
