Já það er óhætt að monta sig aðeins yfir lestri síðustu daga…því seinni önnin byrjaði með svipuðum hætti og sú fyrri. Ég og Björgvin fórum í Hlöðuna laugardag og sunnudag…Birkir bauð okkur í graut á laugardaginn og peppaði okkur áfram með því að segja vera að fara út í góða veðrið að mynda og sagðist ætla að kíkja á “Strandið” með nafna skipsins sem strandaði Baldvini Þorsteins.
Það var síðan tekið á því á mánudaginn í Hlöðunni og á bókasafninu í Öskju (nýja náttúrufræðihúsinu) eins og á þriðjudaginn. Þannig að maður er að komast í ham, enda verður ekki mikið lært um helgina…ég að fara að vinna báða dagana í Skeifunni.
Bjöggi dreif mig með sér í ræktina í gær þannig að tveggja vikna frí er á enda þar…var veikur í viku og að aumingjast í aðra. En það var tekið hraustlega á því eins og vanalega og byrjað á sömu þyngdum og fyrir hálfum mánuði. Strengirnir eru ekki enn komnir en það ekki útilokað að maður hafi verið aðeins stífur í morgun.
Jæja ég ætla að fara að skríða í bólið til Kollu…hún er að lesa undir sálfræðipróf en ég ætla nú bara að snúa mér á hina og safna kröftum fyrir morgundaginn.