strengir

You are currently browsing articles tagged strengir.

vinna vinna

Maður er mættur í vinnu í dag…þurfti að leysa af í dag hérna í HörpuSjöfn. Það er fínt að vera hérna, rólegt að gera og ég að kíkja í erfðafræðina. Ég vaknaði um 9 og fór í sund og í heita pottinn til að ná úr mér þessum helvítis strengjum. Ég er helaumur frá olnboga og upp á miðjan upphandlegg á báðum höndum. Ég hef greinilega farið aðeins og geyst í armbeygjurnar um daginn.

Í kvöld verður svo farið í fertugsafmæli til frænda Kollu, það verður örugglega fínt! Ég fer svo suður með Braga og Möggu á morgun og Kolla verður alein í Spító…greyið

Jæja ég verð að fara að læra á meðan að enginn nennir að versla sér málningu…þeir sem koma fá ókeypis snittur og gos…það er opið til 14:00. Það var víst eitthvað málarakvöld hérna í gær og mikill afgangur af mat sem ég er að reyna að vinna í að minnka

Segjum það í bili, góða helgi….!

Tags: ,

Þetta er búið að vera rólegur dagur hérna í Spítalaveginum. Ég fór seint á fætur og finn vel fyrir átökum gærdagsins. Ég hafði engan kraft í mér til að læra en fór í staðinn í sund og lá í heitu pottunum og undir nuddbununni fyrir ofan buslulaugina…er ekki frá því að ég hafi náð að mýkja mig aðeins upp. Á morgun byrjar skólinn ekki fyrr en 12:30 þannig að maður getur ef til vill lært eitthvað í fyrramálið.

Birkir Bald. skrapp norður um helgina til að halda upp á fimmtugann pabba sinn og bar þess merki að hafa verið að halda vel upp á það í gær
Ég og Kolla fórum í mat í Espilundinn og gæddum okkur á Sökku lambi með bestu lyst. Það er marg sannað að lambakjötið þaðan er langbest enda ekkert slor land sem féinu er beitt á “Lengi lifi Hamarsdalurinn”

Núna er best að fara að taka úr þvottavélinni…

Tags: ,

Góða kvöldið hér…

Jæja eru ekki allir að missa sig í drykkju og vitleysisskap í þessum töluðu orðum…? Jú alveg örugglega! Ég er þó undantekning á því að ég tók hraustlega á því um síðustu helgi og var að vinna frá 8-20 í dag. Ég var í fyrsta sinn að landa afla upp úr togara og var það hreint mögnuð lífsreynnsla. Ég er ekki frá því að puttarnir á mér séu bólgnir í fingurgómunum því að við vorum að lyfta einum 200 tonnum af fiskimjöli upp úr togaranum Kiel. Fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta alveg hrykalega stórt skip sem veiðir og framleiðir fiskimjöl í 70 daga túrum og er skip dótturfyrirtækis Samherja hf, sem heitir Doutchefishfang union (held að það sé skrifað svona ) Þetta voru 35kg og 50kg pokar og var því þrautin þyngri að halda á þessu…en maður beit á jaxlinn og móaðist við.

Núna er ég hins vegar búinn að fá mér 140g nautaborgara frá þeim á Götugrillið (nýr staður beint á móti BSO) og bragðaðist hann alveg abragðs vel. Ég kíkti aðeins á ömmu og afa í Mýrarveginum og horfði á mynd með ömmu (afi horfði með öðru auganu inn í rúmi )

Kolla er að skemmta sér með vinkonum sínum og er vísta að fara í bekkjarpartý líka þannig að ég á ekki von á henni fyrr en um seint og um síðar meir. Ætli maður fari bara ekki að sofa ef það er ekkert meira í sjónvarpinu, ég er farinn að finna fyrir þessum svaðalegu strengjum strax…þannig að það er best að fara að hvíla lúin bein. Vonandi að þið njótið kvöldsins…góða nótt!

Tags: ,