Veður

You are currently browsing articles tagged Veður.

Veturinn að koma…

Ég hjólaði í nýju rannsóknarbygginguna þar sem auðlindadeildin hefur aðsetur í gær. Það er ekki frásögufarandi nema að á móti mér var þessi líka voða skafrenningur. Á venjulegum degi er ég 4-5 mín að hjóla í Glerárgötuna þar sem kennslan hefur verið til þessa, núna var ég hins vegar 15 mín og veðurbarinn. Það er næsta verkefni að setja nagladekkin undir því að ef maður ætlar að stunda þetta að einhverju ráði í vetur þá verður maður að hafa þau…svo maður spóli ekki bara í Borgarbrautinni.

Nýja húsið er fínt, reyndar ekki alveg tilbúið en alveg kennsluhæft…hún reis á einu ári og mér sýnist hún mjög fín að öllu leyti (þar til annað kemur í ljós a.m.k ).
Núna er ég búinn að prófa eitt nýtt á Akureyri…já ég tók strætó í morgun, alveg mögnuð lífsreynsla en svipuð og í Reykjavík. Ég tók svona hálftíma í að missa af strætóum og læra á kerfið…hefði sennilega verið fljótlegra að labba bara En ég get þó glatt ykkur með því að nú verða ferskar strætósögur annað slagið líkt og síðasta vetur .

Jæja best að hætta þessu bulli, Kolla er komin heim úr vinnunni…best að taka vel á móti henni

Tags: , ,

Ég er enn á lífi!

Já maður er ekkert búinn skrifa á þetta blogg í háa herrans tíð og á örugglega ekki eftir að breytast fyrr en í haust þegar skólinn byrjar. Ég er bara búinn að hafa það gott í Spítalavegi 1, varð ekkert var við það þegar maður með veiðiriffil gekk um hverfið mitt í miklu hugarangri, var í bíó á irobot með Kollu…alveg mögnuð mynd. En það er ekki að spyrja að því maður er ekki lengi að koma sér í “gettóið” aftur. Breiðholtið var bara upphitun, rifflar sem eru til þess ætlaðir að fella hreindýr er nánast dagleg sýn hérna við Spítalaveginn og menn kalla ekki allt ömmu sína. Verslunarmannahelgin verður ljúf og góð á Akureyri, ég er í fríi laugardag, sunnudag og mánudag en Kolla er að vinna alla dagana svo að það verður sjálfsagt ekki farið neitt nema þá í smá partý og í Sjallann. Í dag er gott veður hérna á Akureyri, bara dáltið hvasst…moldrok í morgun en ég held að það sé hætt núna. Ég lenti í bráðum lífsháska núna á síðasta laugardag. Þegar ég er við það að klára að slá lóðina hjá frænku minni, sem er út í Noregi núna næstu þrjár vikurnar, sé ég hvernig einn runninn vex vel inn á lóðina. Ég ræðst að sjálfsögðu til atlögu og slæ allt grasið undir greinunum á honum með miklum tilburðum því ekki vildi ég slá í runnan sjálfann. Mikið gekk sem sé á…en þá allt í einu finn ég þennan agalega sting í nefið, og hugsa með mér að núna hafi ég sogið brenninetlu upp í nefið eða einhvern fjandann því þetta var rosalegur stingur. Ég hnussa og hnussa og snýti mér af alefli, en þá sé ég að það er allt morandi í geitungum í kringum mig og ég tek til fótana. Þetta var þá geitungur sem stakk mig í nefið eftir allt saman Ég tók mér smá pásu frá slættinum en síðan kláraði ég verkið, greinilega ekki ofnæmur fyrir geitunga stungum því að ég var rétt aðeins aumur í nefinu og síðan var það búið. Maður hefur heyrt þvílíkar sögur um fólk sem hefur bólgnað til helvítis af þessum völdum þannig að maður var óneitalega verulega smeykur þegar þessi sviði kom í fyrstu í nefið. En það fór nú fljótt og ég er enn á lífi…fleiri sögur að sinni, hafið það gott um verslunarmannahelgina!

Tags: , ,

Já nú er páskafríið búið og alltaf styttist í prófin…maður er bara búinn að borða, vinna og sofa. Gott líf en ekki vænlegt til árangurs í skólanum…Ég og Kolla sáum myndina Just maried í gær, hún var bara helv.. góð.

Veðrið í gær var ekta Reykjavíkurveður, fyrst skein sólin í morgunsárið síðan kom þessi svaka snjókoma og jörðin varð hvít á svipstundu. Klukkutíma síðar var allur snjórinn farinn og sólin farin að skína. Stoppaði samt stutt því það kom rigning í smátíma og fór að hvessa aðeins. Alveg ótrúlegt þetta veður fyrir sunnan.

Núna í dag er sól og soltill vindur…veit ekki hvað verður þannig lengi.

Jæja ætla að halda áfram að læra…ekkert meira í fréttum að sinni.

Tags: ,

Sól í Reykjavík

Það er þetta fína veður úti í núna og ætla ég að fara út á eftir og njóta þess. Það er reyndar frekar kalt en það gerir svo sem ekkert til maður klæðir sig bara í eitthvað hlýtt. Ég og Kolla fórum að sjá Sugar Babes í gær, en Styrmir og félagar í Skyttunum voru einmitt að hitta upp með Önnu Katrínu með sér. Kolla vann miða í Visa svart leik á netinu þannig að við sluppum nokkuð ódýrt út úr þessu. Þetta var bara ágætis skemmtun og gaman að horfa á. Meðalaldurinn þarna inni var frekar lítill en mest var um gelgjur úr 7-10. bekk. Þó voru einstaka fólk sem við þekktum eins og Jón Víðir, Baldvin og Heimi Árna. Ég hef það ekki meira að sinni, ætla í bíó í kvöld eftir mat hjá Bjarna og Hrefnu.

Tags: ,

Góða kvöldið

Ég var að koma úr Kringlubíói, við Kolla skruppum á School of Rock. Hún var bara skemmtileg og þakka ég Brynju “tengdó” kærlega fyrir miðana…alltaf nett á því sú gamla

Allavega þá mæli ég með myndinni til að lyfta sér upp úr skammdeginu, enn rigning og rok í Reykjavík…úúúffff!!

Jamm ekki margt í fréttum maður er ekkert að vinna um helgina, kannski að maður læri..hmmmm!

Spurning að elta Björgvin í hlöðuna, hann er á fullu í prófum kallinn og les sem aldrei fyrr. Sendi honum strauma núna……………….!

Hafið það sem best þið þarna sem þetta lesið, ég vona rigningin komist ekki alveg ofan í brók hjá ykkur, engin skömm að nota regnhlíf til að halda lífi. Var blautur fram að hádegi eftir að hafa hlaupið frá Bóksölunni þannig að ég er að spá í að fá mér eina slíka.

Tags: ,

Það er búið að vera djöflus hávaða rok hérna í Breiðholtinu síðan á aðfaranótt sunnudags. Þessi djöflus læti eiga víst að halda áfram út vikuna. Þetta er náttúrulega alveg ömurleg læti þegar veikur maður er að reyna að sofa…en heilsan er svo sem að lagast þannig að maður getur farið að flýja eitthvað vestur í bæ þar sem vindurinn er a.m.k. aðeins rólegri.

Jæja þá er ég búinn að þrasa nóg yfir veðrinu…sem hefur reyndar aldrei verið neitt gagn í því það er bara eins og það er og ég breyti því ekkert þó ég sé að tuða yfir því. Enn þetta hafa menn reyndar gert frá örófi alda þannig að það er ekki ólíklegt að þetta sé í genunum. Kannski framtíðar verkefni fyrir verðandi vísindamenn að finna hvaða gen í genamenginu stjórnar tuði yfir veðrinu…gæti orðið skemmtileg rannsókn. Jæja best að hætta bullinu áður en það nær herljargreipum á mér. Læt eina stöku fylgja svona í restina…

Í Breiðholti er gott að búa

en bara í sól og yl.

Ekki ættirðu þessu að trúa

hér býðst bara stormur með byl.

Tags: ,

Óveður á landinu!!

Það er alveg bandbrjálað veður á mest öllu landinu, fyrir norðan hefur ekki snjóað eins mikið á jafn stuttum tíma lengi lengi…og er víst ófært í þessum töluðu orðum upp í Hlíðarfjall og ruslahauga. Hérna fyrir sunnan er agalega hvasst, maður verður að fara varlega því það getur verið ansi erfitt að fóta sig í svona miklum vindi og hálku.

Ég er búinn að vera að reyna breyta útlitinu á blogginu mínu…hefur ekki gengið nógu vel, er að hugsa um að halda mig bara við þetta þar til ég er búinn læra almennilega á heimasíðu forrit og Photoshop, jæja ekkert meira í fréttum

—yfir og út—

Tags: