Í gær kláraði ég að mála með góðri hjálp frá Björgvini, síðan fórum við tvær ferðir með drals niður í Spítalaveg 1. Nú fer að styttast í það að maður flytji frá mömmu og pabba. Maður verður nú samt með annan fótinn í Espilundinum þegar maður er svangur og svona .
Það er ekki átakalaust að koma draslinu inn í íbúðina sem við erum að fara leigja því hún er á þriðju í húsinu og þröngir og brattir tréstigar eru ekki til að hjálpa. Við reyndum að fara með bókahilluna mína upp í heilu lagi en hún komst engan veginn sökum þrengsla og því tókum við hana alla í sundur til að þetta gengi.
Í dag erum við að hugsa um að koma með ísskáp frá ömmu hennar Kollu og fylla hann af mat. Við þurfum því að taka vel á því, þar sem annar ísskápur er fyrir upp í eldhúsi en hann er með svo litlu frystihólfi að við erum að hugsa um að skipta honum út.
Það er afskaplega rólegt í vinnunni núna, Einar er í fríi þar sem hann er að keppa á Pollamótinu og Ævar skrapp að ná sér í sólgleraugu í Glerártorg því hann ætlar að fara til Spánar í tvær vikur.
Portúgalar spila við Grikki á EM, ég og Kolla erum að fara til Portúgal eftir 55 daga og erum diggir stuðningsmenn Portúgals. Það er alveg á hreinu að ég fæ mér nýja treyju með Figo þegar ég fer út. Keypti mér Zidane-treyju í Frakklandi og get ekki klæðst henni með sóma á næstunni.
Jamm ég er sem sagt á fullu að flytja þessa dagana og hef mjög gaman að því…við Kolla munum örugglega gera lítið annað um helgina en að koma okkur fyrir. Gef skýrlu um gang mála síðar…
