Ýdalir

You are currently browsing articles tagged Ýdalir.

Mættur í vinnu..

Já maður er mættur til vinnu þrátt fyrir að vera léttur á því í Ýdölum í gær. Við gerum ágætis ferð þangað, fór með Birki, Kollu og Fanneyju. Birkir keyrði því hann var mættur til að ná myndum af íslensku sveitaballi og fór fimlega með nýju myndavélina. Held hann hafi náð nokkrum góðum skorumyndum fyrir séð og heyrt…hann var samt hvergi sjáanlegur þegar roslegur ástaleikur átti sér stað við hliðina á okkur Kollu og vinum hennar. Einn gæji var gjörsamlega að borða eina stúlkuna og mér sýndist hann hafa misst eitthvða ofan í buxurnar hennar því hann var að þreifa eftir einhverju þar. Við vorum annars komin heim um hálf fjögur og var farið beint að sofa, eftir að maður hafði sent fötin með þessari líka reykingastibbu í sótthví. Það ætti að vera stranglega bannað að reykja á svona skemmtistöðum! Vona að lög um það komi sem fyrst þegar menn eru búnir að fá nóg af fjölmiðlafrumvarpinu. Jæja dagurinn er að verða búinn hérna HörpuSjöfn best að fara að loka þessari búð og halda heim á leið.

Tags: ,

Ég er búinn að vera alveg arfa slakur að skrifa á þessa bloggsíðu síðustu daga og eiginlega alveg síðan ég kom norður. Maður er bara alltaf að brasa eitthvað og er lítið í tölvunni svona á sumrin. Það er alltaf einhver ritstífla í mér þegar ég ætla að fara að skrifa hérna þannig að ég hætti yfirleitt við. Það er samt fínt að sjá að einhverjir nenna að kommenta á þetta í rugl í manni, þó maður nenni ekkert að skrifa á móti. Ég komst þó að einu í vinnunni um daginn að það var ekki mjög merkilegur árangur að hjóla upp í Hlíðarfjall á 36 mín, þó að klukkan hafi gengið í 5 mínútna pásunni, því að metið þarna upp eftir á víst einhver gönguskíðadrjóli sem er 23 mín. Þannig að nú verð ég aldeilis að fara að spýta í lófanna og hjóla nokkrum sinnum þarna upp og athuga hvort tíminn lagist ekki eitthvað. Annars er púnterað á hjólinu núna svo maður hjólar ekki mikið. Verð að gera við það á morgun. Önnur stórmerkileg frétt er að maður þarf að ná 5.5 í meðaleinkun í fimm hæstu áföngunum í Háskólanum til að komast á milli ára í líffræðinni. Þetta er bara gott mál því ég er búinn að ná því og er því heimilt að hefja annað ár í líffræðinni þegar þar að kemur. Ætla nú samt að taka nokkur próf aftur því það eru algjörar sultu einkunnir í sumum fögunum og ekkert gaman að hafa þær á einkunnaspjaldinu…maður náði þessu þó í bili, fegra svo einkunnaspjaldið síðar.

Já svo eru það Ýdalir á morgun, veit ekki alveg hvort ég fer…það kemur í ljós á morgun. Maður er orðinn svo gamall að maður passar ekki inn í þetta, eða hvað…ætla allir að mæta?

Ætla að fara að halla mér…sofið þið vel!

Tags: , ,